Persónuverndarstefna

Persónuverndarstefna okkar gildir um allar þær persónugreinanlegar upplýsingar sem samtökin kunna að safna gegnum vef okkar eða með öðrum rafrænum samskiptum.

Rafíþróttasamtök Íslands (hér eftir nefnd RÍSÍ) hlítir lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga .

Lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga ná ekki til lögaðila.

RÍSÍ hafa persónuvernd og öryggi að leiðarljósi í allri meðferð upplýsinga um viðskiptavini sína og ber fyrirtækið ábyrgð á þeim gögnum sem fyrirtækið safnar.

RÍSÍ selur aldrei persónugreinanlegar upplýsingar um viðskiptavini sína né meðlimi.

RÍSÍ leitast við að takmarka vinnslu persónugreinanlegra upplýsinga og safnar ekki ónauðsynlegum upplýsingum um viðskiptavini sína né starfsmenn. Gildir það um heimsóknir á vef okkar og önnur rafræn samskipti.

Öll póstsamskipti RÍSÍ fara í gegnum GDPR og ISO-27001 vottaða pósthýsingu og öll rafræn gögn eru hýst innan Evrópusambandsins.

Þú getur lesið þér til um réttindi þín á vef Persónuverndar.

Samþykki
Með því að nota vefinn okkar samþykkirðu ofangreinda skilmála.
Leit