Fortnite

Elko Deildin – Duos – Vor 2026

Keppnistímabilið 25/26 í Elko Deildinni heldur áfram og það verður alvöru Duos mót sem hefst í lok Febrúar!

Mótið er spilað í gegnum netið. Mikilvægt er að vera inná Discord Rás Fortnite Ísland til að eiga samskipti við mótastjórn og fá upplýsingar á meðan keppni er í gangi.


Dagskrá

25. Febrúar – Undankeppni
Lið keppa upp á „seed“ fyrir úrslitakvöldið. Því ofar sem þitt lið endar í undankeppninni, því fleiri stig byrjið það með á úrslitakvöldinu.

4. Mars – Úrslitakeppni
Lið safna stigum með því að ná fellum (Eliminations) og ná langt í leikjum (Placement). Liðið með hæsta stigafjölda í lok kvöldsins stendur uppi sem sigurvegari.

Keppt er milli sirka 18:30-21:00 á þessum dögum. Leikir mótsins eru í beinni útsendingu í Sjónvarpi Símans og á netrásum RÍSÍ.


Verðlaunafé

Það eru 100.000 kr. í verðlaunafé sem drefist á efstu 5 liðin

1. Sæti – 40.000 kr.

2. Sæti – 22.000 kr.

3. Sæti – 16.000 kr.

4. Sæti – 12.000 kr.

5. Sæti – 10.000 kr.


Skráning

1. Veldu „skráning“ og skilaðu inn upplýsingum til mótastjórnar.

2. Veldu „mótsgjald“ og greiddu mótsgjald deildarinnar.


Með spurningar varðandi skráningu skal heyra í Mótastjóra RÍSÍ – bjarkimar@rafithrottir.is

Með annað tengt mótinu skal heyra í mótastjórn Fortnite á Discord rás Fortnite Ísland.