Rafíþróttasamband Íslands er þátttakandi í fjölbreyttum samevrópskum verkefnum. Samstarfsverkefnið Gaming and Parents! er eitt þeirra verkefna sem RÍSÍ tekur virkan þátt í.
Verkefnið er leitt af Close in the Distance frá Ítalíu sem er almannaheillafélag með reynslumikið starfsfólk úr menntamálum, sálfræði, leiðbeinendum og áfram mætti telja. Með sjálfboðaliðastarfi þeirra leggja samtökin ríka áherslu á að efla börn og ungmenni með fræðslu, þjálfun, námskeiðum og virku samtali fullorðinna og ungmenna. Með áherslu á tölvuleiki vilja samtökin styðja þétt við heilbrigt og öruggt umhverfi fyrir alla án aðgreiningar.
Verkefnið Gaming and Parents! Er styrkt af Erasmus+. Verkefninu er ætlað að efla evrópskt samstarf með samvinnu aðila verkefnisins ásamt því að allar afurðir verkefnisins verða opnar og aðgengilegar fyrir alla áhugasama.
Í verkefninu eru samstarfsaðilar að skoða tölvuleiki og tölvuleikjanotkun út frá nokkrum áhugaverður sjónarhornum. Til skoðunar verða meðal annars jákvæðar birtingarmyndir af samspilun tölvuleikja hjá foreldrum og börnum þeirra, menntunargildi tölvuleikja, jákvæðar birtingarmyndir af virkri þátttöku foreldra í rafíþróttastarfi barna sinna ásamt fleiri áhugaverðum tengingum leikja og kennslu. Útbúin verður handbók fyrir foreldra um tölvuleiki og hvernig er hægt að nota tölvuleiki sem sameiginlegt fjölskylduáhugamál. Farið verður yfir hvernig leikir ganga fyrir sig, hvernig hægt sé að þekkja jákvæðar afleiðingar leikjaspilunar ásamt hvernig hægt sé að sjá hugsanleg neikvæð merki leikjaspilunar.
Einnig verður útbúinn gagnagrunnur um fjölskylduvæna leiki og margvísleg gögn sem nýtast geta foreldrum, ungmenna stofnunum og öðrum hagaðilum. Skipulögð verður heimsókn þar sem ítölsku samtökin heimsækja Ísland og RÍSÍ til að öðlast innsýn í skipulagt æskulýðsstarf rafíþróttafélaga á Íslandi ásamt því að kynnast hvernig menntastofnanir nýta leiki og tækni í kennslu. Allar lokaafurðir verkefnisins verða aðgengilegar fyrir áhugasama þegar að samstarfs verkefninu lýkur.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um verkefnið á heimasíðu Close in the Distance, https://www.closeinthedistance.com/en/progetti/gaming-and-parents ásamt nánari upplýsingum um félagið.

Funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or the European Education and Culture Executive Agency (EACEA). Neither the European Union nor EACEA can be held responsible for them.
Project Identification Number: 2023-2-IT02-KA210-ADU-000175959
