Ævintýrin eru skemmtilegri saman!

Adventures are better shared!

Rafíþróttasamband Íslands er þátttakandi í fjölbreyttum samevrópskum verkefnum. Samstarfsverkefnið Adventures are better Shared! er eitt þeirra verkefna sem RÍSÍ tekur virkan þátt í.

Verkefnið er leitt af Close in the Distance frá Ítalíu sem er almannaheillafélag með reynslumikið starfsfólk úr menntamálum, sálfræði, leiðbeinendum og áfram mætti telja. Með sjálfboðaliðastarfi þeirra leggja samtökin ríka áherslu á að efla börn og ungmenni með fræðslu, þjálfun, námskeiðum og virku samtali fullorðinna og ungmenna. Með áherslu á tölvuleiki vilja samtökin styðja þétt við heilbrigt og öruggt umhverfi fyrir alla án aðgreiningar.

Sverok eru sænsk regnhlífasamtök fyrir fjölda leikjaklúbba í Svíþjóð. Félagið telur meira en 55 þúsund meðlimi og 1700 aðildarfélög. Starfsemi samtakanna kjarnast í kringum fjölbreytta leikjaklúbba fyrir ungmenni sem skipuleggja viðburði í tengslum við tölvuleiki, borðspil, rafíþróttir, hlutverkaleiki og fjölda annarra leikja tengdra áhugasviða. Rík áhersla samtakanna er að aðildarfélög séu lýðræðisleg og bjóði öllum ungmennum upp á skemmtilegt starf án aðgreiningar.

Verkefnið Adventures are better shared! er styrkt af Erasmus+ og hófst í september 2024. Verkefninu er ætlað að efla evrópskt samstarf með samvinnu aðila verkefnisins ásamt því að allar afurðir verkefnisins verða opnar og aðgengilegar fyrir alla áhugasama.

Í verkefninu verða tekin viðtöl við unga og aldna leikjaspilara þar sem ítarleg skoðun verður gerð á jákvæðum birtingarmyndum leikjaspilunar þeirra og hvernig hæfileikar í leikjaspilun þeirra hafa skilað sér í daglegt líf þeirra utan leikja. Í seinni hlutum verkefnisins verður ríkt samstarf og samtal við aðila í menntamálum, meðal annars í gegnum EPALE, og með margvíslegum viðburðum. Viðburðir verða settir á fót fyrir kennara, leiðbeinendur, starfsmenn æskulýðsmála og fleiri hagaðila með áherslu á möguleikum tölvuleikja í kennslu. Allar lokaafurðir verkefnisins verða aðgengilegar fyrir áhugasama þegar að samstarfs verkefninu lýkur.

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um verkefnið á heimasíðu Close in the Distance, https://www.closeinthedistance.com/en/progetti/adventures-are-better-shared, ásamt nánari upplýsingum um félagið.

Nánari upplýsingar um Sverok er hægt að nálgast á heimasíðu þeirra, www.sverok.se

Funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or the European Education and Culture Executive Agency (EACEA). Neither the European Union nor EACEA can be held responsible for them.

Project Identification Number: 2024-1-IT02-KA210-ADU-000246576