STAY – Skills for Thriving, Agency and Youth Engagement

STAY er evrópskt samstarf sem hefur það að markmiði að takast á við þá áskorun sem oft er kölluð quiet quitting. Hugtakið lýsir því þegar fólk missir áhuga, dregur sig í hlé eða upplifir minni tengsl við nám, starf eða samfélagið. Markmiðið er að efla þátttöku og styrkja tengsl ungs fólks við umhverfi sitt.
Starfið hófst í upphafi árs 2026 og lýkur í desember sama ár. Á þessum tíma vinna samstarfsaðilar að gerð fræðsluefnis sem nýtist bæði ungu fólki og þeim sem starfa með því. Jafnframt verða þróuð verkfæri sem auðvelda samtöl um þátttöku, samskipti og markmið.
Samstarfsaðilar eru Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ), Pannonia Consulting og Pilcrow. Samstarfið byggir á reynslu þeirra af ungmennastarfi, menntun og samfélagsverkefnum.
Rafíþróttasamband Íslands leiðir þann hluta vinnunnar sem tengist rafíþróttum og stafrænu ungmennastarfi. Þar er litið á rafíþróttir sem vettvang fyrir jákvæð samskipti, samvinnu og félagsleg tengsl.
Fræðsluefnið verður aðgengilegt til notkunar í skólum, ungmennastarfi, félagasamtökum og rafíþróttafélögum. Markmiðið er að skapa efni sem nýtist til framtíðar og styður bæði ungt fólk og þau sem vinna með því.

Funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or the European Education and Culture Executive Agency (EACEA). Neither the European Union nor EACEA can be held responsible for them.
Project Identification Number: 2025-2-IS01-KA210-YOU-000367703