Netöryggi í rafíþróttum

Netöryggi í rafíþróttum fyrir alla (e. Cyber Security in Esports for Everybody)

Netöryggi í rafíþróttum fyrir alla (e. Cyber Security in Esports for Everybody) er fræðsluverkefni sem hefur það að markmiði að efla netöryggi barna og ungmenna með sérstakri áherslu á leikjaumhverfi og rafíþróttir. Markmiðið er að styðja börn, foreldra og fagfólk með aðgengilegu fræðsluefni um örugga og ábyrga netnotkun.

Fræðsluefnið var þróað í samstarfi við foreldra, sérfræðinga og þátttakendur innan rafíþróttaumhverfisins. Unnið var að gerð handbóka, kynninga og námskeiða sem miðuðu að því að efla þekkingu og öryggi í stafrænum samskiptum.

Lögð var áhersla á helstu áskoranir stafræns umhverfis. Þar var meðal annars farið yfir samskipti á netinu, neteinelti, persónuvernd, rafræn viðskipti í leikjum og áhrif samfélagsmiðla. Jafnframt var áhersla lögð á að hvetja til opinnar umræðu og efla sjálfstraust barna og ungmenna í stafrænum samskiptum.

Þrátt fyrir að verkefninu sé lokið verður áfram unnið að þróun og uppfærslu efnisins með áherslu á nýja tækni, breytilegar netógnir og þróun stafræns umhverfis. Ábendingar og reynsla þátttakenda munu nýtast til að bæta efnið og tryggja að það nýtist sem best ólíkum notendum.

Undirbúningur og þróun kynningar- og stuðningsefnis heldur áfram til að styðja við góða miðlun verkefnisins og efla stafrænt öryggi og ábyrga þátttöku í rafíþróttum. Fræðsluefnið verður nýtt í skólum, rafíþróttafélögum og félagsmiðstöðvum með fjölbreyttum leiðum, svo sem vinnustofum, námskeiðum og stafrænum miðlum, þar á meðal á vefsíðum og samfélagsmiðlum.

Sérfræðingar frá Rafíþróttasambandi Íslands (RÍSÍ) leiddu fræðsluna og unnu náið með aðildarfélögum, skólum og félagsmiðstöðvum. Með því var tryggt að efnið væri lagað að þörfum mismunandi markhópa og að fræðslan væri lifandi, gagnleg og aðgengileg.

Handbækur
Sem hluti af verkefninu voru þróaðar tvær handbækur sem styðja við örugga og ábyrga netnotkun. 

Öruggt stafrænt heimili fjallar um hvernig foreldrar og forráðamenn geta stuðlað að öruggri og ábyrgri netnotkun barna og ungmenna.´Þar er farið yfir helstu áskoranir á stafrænum vettvangi, mikilvægi góðra samskipta og einfaldar leiðir til að efla netöryggi innan heimilisins.

Handbók um netöryggi  veitir hagnýta fræðslu um algengar netógnir, öruggar stafrænar venjur og mikilvægi þess að vernda persónuupplýsingar og aðganga. Sérstök áhersla er lögð á fræðslu um lykilorð, fjölþáttaauðkenningu, netblekkingar og örugga notkun gervigreindar.

Handbækurnar eru aðgengilegar bæði á íslensku og ensku

  • Netöryggi á stafrænum vettvangi
  • Öruggt stafrænt heimili
  • Online Safety in Digital Environment
  • A Safe Digital Home

 

 

Funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or the European Education and Culture Executive Agency (EACEA). Neither the European Union nor EACEA can be held responsible for them.

Project ID: Netöryggisstyrkur Eyvarar NCC-IS.2026