Game Changer

Game Changer og Game Changer 2.0

Game Changer er samstarfsverkefni sem Rafíþróttasamband Íslands hefur verið virkur þátttakandi í með samstarfsaðilum frá Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi og Íslandi. Game Changer, og framhaldsverkefnið Game Changer 2.0 voru leidd af Ofbeldisforvarnarskólanum (Ofsi) og samstarfsaðilar hafa meðal annars verið Sverok frá Svíþjóð, NORDREF (Nordic Digital Rights and Equality Foundation), Sua Varten Somess frá Finnlandi, SEUL (Finnska rafíþróttasambandið), Digitalt Ansvar og CfDP (Center for Digital Pædagogik) frá Danmörku og Klutz.

Verkefnið á rætur að rekja til niðurstaða rannsókna NORDREF á gerendum stafræns ofbeldis gegn konum og stúlkum á Norðurlöndum. Rannsóknirnar leiddu í ljós að karlar undir þrítugu eru í meirihluta gerenda kynbundins stafræns ofbeldis. Game Changer verkefnið vinnur að því að sporna gegn stafrænu ofbeldi með sérstaka áherslu á að ná til ungra karla með aðferðum sem byggja á leikjamenningu og stafrænu æskulýðsstarfi.

Markmið verkefnisins er að efla stafræn réttindi og borgaravitund ungs fólks. Raddir viðkvæmra hópa, þar á meðal LGBTQ ungmenna, skipta verkefnið miklu máli, ekki síst þar sem þeir hópar verða oftar fyrir því ofbeldi sem Game Changer verkefnið leitast við að fyrirbyggja.

Game Changer verkefnið hefur skipts í tvo áfanga. Fyrri áfanginn hófst í september 2023 og stóð fram í október 2024. Margt var framkvæmt og búið til í verkefninu. Afurðir verkefnisins og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu NORDREF, https://www.nordref.org/game-changing-summary , má þar meðal annars nefna handbók fyrir mótshaldara og loka afurð verkefnisins sem var ráðstefna sem haldin var í Gautaborgarháskóla í október 2024. Tengill á handbókina má einnig nálgast neðst í textanum hér.

Í kjölfar fyrsta áfangans hófst næsti áfangi verkefnisins, Game Changer 2.0 sem hófst árið 2024 og lýkur 2026. Markmiðið þess verkefnið er meðal annars að koma á fót Stafrænum ungmenna sendiherrum (Digital Youth Ambassadors) frá hverju Norðurlandi sem þátt tekur í verkefninu. Þeir sendiherrar er ungt fólk sem stuðla að miðlun hugmynda um bestu starfshætti og lausnir við sameiginlegum áskorunum á netinu.

Jafnframt þróar verkefnið Nordic Navigator of Safety and Well-being in Gaming and Digital Spaces, www.nordicnavigator.org , þar sem safnað er saman fjölbreyttu efni, greinum, úrræðum og fleira víðs vegar af Norðurlöndum. Vefsíðan myndar því yfirgripsmikinn gagnagrunn um hvernig megi byggja upp betri, heilbrigðari og öruggari netmenningu fyrir ungmenni og aðra notendur.

 

Funded by the European Union. Views and opinions expressed are however those of the author(s) only and do not necessarily reflect those of the European Union or the European Education and Culture Executive Agency (EACEA). Neither the European Union nor EACEA can be held responsible for them.

Project Identification Number: 2024-1-IS01-KA220-YOU-000256126